Orrusta með álfum

 

Hóll einn er í milli Síðu og Fljóthverfis (Orrustuhóll). Hellir var inn undir hann, enda var klettur undir hólnum.  Í helli þessum voru geymdir reiðingar, reipi og ýmsar búnauðsynjar.  Álfar byggðu hólinn að menn sögðu.  Það var rétt á undan gosinu að frá hól þessum heyrðust oft mikill orrustugnýr; vígahljóð, vopnaglamur, óp og eggjan, brestir og brak, en enginn þorði að vitja um það; gekk á því lengi, lengi en ekkert sást og því vissu menn að álfar háðu þar orrustu sín á milli.  Loks létti orrustugnýnum og allt kyrrðist.  En svo kom gosið; bráðin bergelfan kvíslaðist um hólinn og lokaði hellinum með öllu sem í var og hefir nú grafið þá sem féllu.  Alltaf síðan er hólinn nefndur Orrustuhóll.  Svo er að skilja sem menn hafi álitið að orrustan hafi verið bending eða fyrirboði þessa voðalega goss, eða þó heldur af völdum álfa, gosinu komið af stað í hefndarskyni.

Sögn Sigurðar Guðmundssonar frá Hraunbóli, skrásett í kringum aldamótin 1900.

Sigfús Sigfússon. Íslenskar þjóðsögur og sagnir III. (2.útgáfa).  Óskar Halldórsson bjó til prentunar. Reykjavík: Þjóðsaga 1982, bls. 166-167.

Tengdar sögur

Sýn við kirkju

Þegar Sigurður sýslumaður Ólafsson á Kirkjubæjarklaustri ( seinna Kallaðarnesi) gifti sig,