Á Kirkjubæjarklaustri bjó fyrrum bóndi einn, er ríkur var af sauðfé. Eitt haust, þá er hann réttaði, kemur kerling á réttargarðinn og segir: ,,Feigt er fé þitt bóndi!“ Bóndi hafði á móti því, og sagði, að alt mundi það ekki fara. Hún kvað það alt feigt, nema eina á morauða. Um vorið féll hver kvik klauf hjá bóna þessum, nema Morukolla ein. Varð honum svo skapbrátt, að hann kastaði henni út á Skaptá í hroðavexti, og hraktiskt ærin fyrir staumninum, og náði loks landi í Hæðargarðsnesi, og fæddi hún þar um vorið tvær gimbrar morauðar. Út af þeim átti bóndi að hafa grætt upp eins mart fé og hann hafði áður átt.
(Landsbókasafn 425.8vol. með hendi Magnúsar Bjarnasonar á Hnappavöllum um 1889)
Jón Þorkelsson. 1899. Þjóðsögur og munnmæli. Reykjavík. Bókfellssútgáfan.
