Grettisskarð

Grettiskarð heitir skarð mikið norðarlega í Hrútafellsfjalli (undir Eyjafjöllum). Það er, að sögn, eitt af þrekvirkjum Grettis sterka Ásmundsonar, er hann vann á ferðum sínum. Það stykki, er hann þar úr hratt, er hamar feiknastór, sem Drangur heitir, til vissu margar mannhæðir á hæð og eftir því ummálsmikill. Við hann er bærinn í Drangshlíð kenndur, en Skarðshlíð við Grettisskarð.

Önnur frásaga segir, að drangurinn sé kaupskip í ánauðum undir seglum, en um orsök þeirrar sögu hef ég ekki heyrt. Önnur sögn er um Grettisgat í Holtsnúp. Það er gat í brúninni, er hann hafði úr sprengt með fingri sínum.

Eftir handriti Jóns Sigurðssonar í Steinum, í Landsb. 421, 8vo, og segir hann þetta sé „almenn saga“.

Jón Þorkelsson. 1956. Þjóðsögur og munnmæli. Bókfellsútg. Rv. s.  35

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.