Hrafnarnir

Bóndinn á Reykjum í Ölfusi lagðist einu sinni veikur og sendi eftir séra Eiríki til að þjónusta sig því þeir voru aldavinir. Eiríkur fór, en þegar hann kom upp á Selvogsheiði flugu þar hjá honum tveir hrafnar. Eiríkur kallar til hrafnanna og spyr hvernig Reykjabóndanum líði. Krunkuðu þá hrafnarnir og sagði Eiríkur að þeir segðu bóndann dáinn. Sneri hann þá heim aftur, en sendimaðurinn hélt áfram. Þegar hann kom að Reykjum var bóndi fyrir góðum tíma skilinn við.

(Íslenzkar Þjóðsögur og ævintýri/safnað hefur Jón Árnason; Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Reykjavík: Þjóðsaga, 1954-1961, 3, bls. 508).

.

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.