Konan á Skúmstöðum
Á Skúmstöðum í Landeyjum í Rangárvallasýslu bjó forðum bóndi; hann átti sér konu ásjáliga og mörg börn. Einhverju sinni um vetrartíma í rökkri var bóndi út í heygarðim en konan inni við að matselja, Kemur þá til hennar maður er hún hafði aldreigi fyrr séð og biður hana um að hjálpa konu sinni sem sé í barnsnauð. Hún telst undan á allar lundir og segist það aldrei gjört hafa.Hann biður hana því betur þar til konan játar að hún skuli með honum fara. Ganga þau svo þangað til þau koma að háum hól. Lýkst þá hólinn upp og maðurinn gengur inn en konan leggur vettlinga sína upp á hólinn fyrir ofan dyrnar, því þá eiga menn aftur út að komast. Maðurinn sagði að hún skyldi vera óhrædd og ganga þau síðan inn í hólinn. Þar sér konan ekkert nema eitt rúm og konu í. Stuttu eftir kom barnið og fer hún með það eins og vani var til. Lýkur þá heimamaður upp kistli einum og tekur þar stein einn og biður hana að nudda honum um augu barnsins. Konan skilur eigi í hvað þetta á að merkja ig hugsar með sér það geti þó varla orðið sér að meini þótt hún nuddi steininum um annað auga sitt og gerir hún svo, svo heimamaður verði eigi var við. Sér hún þá fólk á gangi um hólinn og sumt sitja að vinna, en lætur eigi neitt á því bera. Síðan fylgir huldumaðurinn henni heim til sín og þakkar henni komuna.
Um sumarið fór bóndinn út á Eyrarbakka með vörur sínar og var kona hans í för með honum. Hann verzlaði við kaupmanninn á Eyrarbakka og heldur síðan heim á leið og liggur við Þjórsá hjá Egilsstöðum. En um kvöldið fékk konan eigi sofnað og er hún hefur legið vakandi um hríð lítur hún undan tjaldskörinni. Sér hún þá með yfirnáttúrulega auganu mann koma að mjölsekkjunum, leysa frá þeim og taka sinn hnefa úr hverjum poka og láta í belg er hann bar undir hönd sinni. Og er hann hafði hartnær fyllt belginn mælti konan til hans:,,Því gjörir þú þetta?” Hann lítur upp á hana stórum augum og mælti:,,Því sér þú mig?” Blæs hann þá á hana svo hún fann glöggliga. Sá hún hann þá eigi framar og eigi neinn huldumann upp frá því.
Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri. Safnað hefur Jón Árnason. Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfu. 1961.Reykjavík. Bókaútgáfan Þjóðsaga( bls.18)
