Lyklafell

Einu sinni týndist lyklakippa Skálholtsstaðar og fannst hún hvurgi; varð að smíða aðra lykla. Leið síðan fram þangað til tólf ár vóru liðin og lyklatapið farið að gleymast, þá fundust lyklarnir í Lyklafelli hjá Fóelluvötnum. Kom þá upp hið sanna að ráðsmaður (al.: bryti) staðarins hafði haft lyklana á sér er hann reið í Reykjavíkurkaupstað og hafði týnt þeim í fellinu er hann áði. Þar af hefir fellið nafn sitt (Íslenzkar Þjóðsögur og ævintýri/safnað hefur Jón Árnason; Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Reykjavík: Þjóðsaga, 1954-1961, 4, bls. 35).

(Sagt er frá brytanum í annarri sögn: Brytinn í Skálholti en hann drukknaði í Brytalækjum sem eru í Skaftárhreppi.)

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.