Snjólfur sterki

Snjólfur bar hest sinn yfir Mýrdalssand

Maður hét Snjólfur; hann bjó í Álftaveri (?) eða einhvurstaðar fyrir austan Mýrdalssand. Hann var fjarskalega sterkur. Er það sagt til merkis þar um að einu sinni þegar hann kom úr verinu gafst reiðhestur hans upp undir honum nokkuð utarlega á Mýrdalssandi. Hann vildi ekki skilja hestinn þar eftir í bjargarleysi, enda ekki drepa hann. Lagði hann þá hestinn á bak sér og bar hann austur af sandinum þangað sem björg var. Snjólfur hefir verið svo snemma uppi að barnabarnabörn hans munu nú vera uppi. Vestur-Skaftfellingar mega kunna fleiri sagnir af honum (1888, 1992, & 1987, 1954, 4, 194).

Enn af Snjólfi sterka sem í þessari sögu réttir við fjós sem er að falli komið

Snjólfur Finnsson sterki var kraftamaður einhver hinn mesti. það er alsagt um hann það hann hafi borið hestinn sinn í fanginu kringum bæinn sinn. Ekki hefi ég heyrt hvar hann bjó annað en það hafi verið einhverstaðar á Síðunni. Einu sinni bilaði stoð úr fjósi hjá nábúakonu hans, ekkju þar á Síðunni; það var um veturinn og seig þekjan inn í fjósið og fraus svo. Sendi hún þá til Snjólfs í vandræðum sínum og bað hann liðsinnis. Hann mældi út lengd á stoðinni, hlóð svo stöpul af torfi og reiðing er hann ætlaði mátulega hátt, smeygði sér þar undir hálfbognum og rétti upp þekjuna frerna þar til mátulegt var. Að þessum starfa loknum setti hún fyrir hann mjólkurtrog með súru skyri og rjóma út á og lauk hann við það. Þar með borgaði hún honum handtakið sér á parti.

Snjólfur Finnsson sterki átti son þann er Þorgeir hét. Hafði hann verið ákaflega sterkur. Hans sonur var Snjólfur á Gamlabænum, sterkur maður er átti Ólöfu Gísladóttir í Arnardrangi Þorsteinssonar í Arnardrangi og Steinsmýri Þorsteinssonar er átti Þórunni Salómonsdóttir í Mörk og Ingibjargar Jónsdóttir á Steinsmýri Eiríkssonar í Holti

(Íslenzkar Þjóðsögur og ævintýri/safnað hefur Jón Árnason; Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Reykjavík: Þjóðsaga, 1954-1961, 4, bls. 194).

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.