Þegar Sigurður sýslumaður Ólafsson á Kirkjubæjarklaustri ( seinna Kallaðarnesi) gifti sig, sá Þórunn yfirsetukona Gísladóttir sýn eina við kirkjuna á Prestbakka, er fólk var að ganga til hjónavígslunnar. Sýndist henni öðrum megin við kirkjudyr standa maður einn hvítklæddur, fremur lágur vexti, og þótti henni maður sá mjög í manngildi við prófastinn sem hjónin gaf saman. Hún sá boðsfólkið ganga fram hjá þessum manni, en enginn annar varð hans var. Tveim vikum síðan drukknaði Jón prófastur Sigurðsson á Prestbakka, sá er hjónin gaf saman.
Sagnakver síra Einars Þórðarsonar, skráð 1907 eftir frásögn Þórunnar Gísladóttur.
Gráskinna hin meiri fyrra bindi.1979.Útgefendur Sigurður Norðdal og Þórbergur Þórðarson. Bókaútgáfan Þjóðsaga. Reykjavík.

Konan á Skúmstöðum
Konan á Skúmstöðum Á Skúmstöðum í Landeyjum í Rangárvallasýslu bjó forðum