Tólfhundraðavatn

Svo heitir tjörn ein eigi stór fyrir austan bæinn Útey, en sá bær stendur í Laugardal austanvert við Laugarvatn. Úteyjarmenn höfðu fyrr meir veiði í tjörn þessari, en það fylgdi veiðinni að þar mátti aldrei veiða meir í senn en til næsta máls. En seinna kom sá maður að Útey sem út af þessu brá og hélt að álög þessi mundu vera marklítil. Hann veiddi nú á svipstundu 1200 silunga, en upp frá því hefur engin veiði verið í vatni þessu, en síðan þetta varð er það Tólfhundraðavatn kallað.

(Íslenzkar Þjóðsögur og ævintýri/safnað hefur Jón Árnason; Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Reykjavík: Þjóðsaga, 1954-1961, 1, bls. 462).

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.