Selshamurinn
Konan átti sjö börn á landi og sjö börn á sjó. Einu sinni var maður nokkur austur í Mýrdal, sem gekk hjá klettum við sjó fram að morgni dags fyrir fótaferð; hann kom að hellisdyrum einum; heyrði hann glaum og danslæti inn í hellinn, en sá mjög marga selshami fyrir utan. Hann tók einn selshaminn […]