Merkisfólk

Engla Imba og systir Fjalla – Eyvindar

Imba plataði konuna og börnin til að fara út á meðan hún stal öllu úr bænum. Engla Imba bjó í Þykkvabæ og þótti handgengin guði og englum hans. Keypti fólk hana til að biðja fyrir sér og stundum þóttist hún hafa í hendi sér ráð yfir lífi sjómanna sem voru á hafi úti. Arnleif Jónsdóttir […]

Engla Imba og systir Fjalla – Eyvindar Read More »

Prestsbakkakirkja

Forspá Jóns Steingrímssonar

Séra Jón Steingrímsson spáði því á banalegunni að kirkjan á Kirkjubæjarklaustri yrði flutt að Prestbakka. Hinn nafnkunni prófastur, séra Jón Steingrímsson, bjó að Prestsbakka á Síðu, þar sem jafnan hafði verið hið ákveðna prestssetur; en þar var þá engin kirkja og hafði aldrei verið. Þar dó hann árið 1791. Þegar séra Jón lá banaleguna, spáði

Forspá Jóns Steingrímssonar Read More »

Höskuldur sterki í Berjaneskoti

Tvær sögur af Höskuldi sem bjó undir Eyjafjöllum og þótti ekki stíga í vitið. Ólafur hét maður er bjó að Hlíð undir Eyjafjöllum fæddur hér um bil á tímabilinu milli 1620 til 1640, almenn[t] kallaður gamli Ólafur. Hann var sonur Höskuldar í Hlíð Hannessonar Krangefods á Lambafelli litara, ættaður frá Írlandi, en kom hingað frá

Höskuldur sterki í Berjaneskoti Read More »

Hörgslands-Móri rekinn út

Hörgslandsmóri á ferð í Vík í Mýrdal Hörgslandsmóri var afturgenginn hundur, sem vakinn hafði verið upp volgur. Var hann svo magnaður til að byrja með, að það þurfti að skammta honum mat, svo sem frá er sagt í þjóðsögum Jóns Árnasonar. Um aldamótin síðustu var svo af honum dregið, að hann virtist máttlítill orðinn og

Hörgslands-Móri rekinn út Read More »

Loðmundur á Sólheimum

Loðmundur nam land þar sem nú heitir Sólheimar í Mýrdal. Faldi hann gull í helli og leikur grunur á að Gráfríður kona hans hafi falið kistu með peningum og dýrgripum í dýi norðan Sólheimahjáleigu.  Loðmundur hinn gamli var mjög tröllaukinn, segir Landnáma. Hann skaut öndvegissúlum sínum fyrir borð í hafi og kvaðst þar byggja skyldu

Loðmundur á Sólheimum Read More »

Bæjarstaður

Hjörleifsleiði og Hjörleifshöfði

Hjörleifshöfði dregur nafn sitt af landnámsmanninum sem þar bjó og dó.  Það verður ekki séð af Landnámu með neinni vissu hvar Ingólfur landnámsmaður heygði Hjörleif fóstbróður sinn; þó liggur næst að halda það hafi verið nálægt því er Hjörleifur hafði byggt, því eftir að verkinu var lokið segir sagan að hann hafi gengið upp á

Hjörleifsleiði og Hjörleifshöfði Read More »

Ingólfur Arnarsson

Ingólfsfjall heitir eftir landnámsmanninum fræga. Sennilega er Ingólfur heygður á fjallinu og sennilega er þar  enn kista full af gulli sem Ingólfur  ætlaði nafna sínum. Hann reisti fyrstur manna byggð hér á landi að staðaldri; sagt er að Ingólfsfjall í Ölfusi dragi nafn af honum. Á því fjalli er sagt að hann sé heygður; eru

Ingólfur Arnarsson Read More »

Dísu veitt ráðning og Dísa missir marks

Stokkseyrar-Dísa kunni margt sem aðir kunnu ekki. Hér eru tvær sögur af Stokkseyrar-Dísu Dísu veitt ráðning Ferðamaður nokkur kom einu sinni að Stokkseyri og bað Dísu að gefa sér að drekka. Hún gjörði það og spurði hann um leið hvort hann vildi ekki selja sér hestinn sem hann reið. „Það gjöri ég ekki,“ mælti hann,

Dísu veitt ráðning og Dísa missir marks Read More »