Marteinslaugar

Fáein atvik eru það enn sem hafa borið við um það leyti sem siðabótin var að komast á hér í landi og einstöku örnefni draga þar af nafn. Svo eru til dæmis Marteinslaugar hjá Haukadal í Biskupstungum sem eiga að vera einkar heilnæmar ef maður baðar sig í þeim. Sagt er að Marteinn biskup Einarsson hafi baðað sig þar fyrstur manna veturinn sem hann sat í Haukadal 1556—57 næstan eftir að hann hafði lagt niður biskupsstörfin.

Þó segja aðrir að laugar þessar dragi nafn af því að þær væri í pápisku helgaðar Marteini frá Tours sem var kallaður helgur maður og var mjög dýrkaður eins hér á landi og annarstaðar¹ (Íslenzkar Þjóðsögur og ævintýri/safnað hefur Jón Árnason; Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Reykjavík: Þjóðsaga, 1954-1961, 2, bls. 78-79).

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.