Merkisfólk

Krossinn í Kaldaðarnesi

Fyrsti lútherski biskupinn tók niður krossinn í Kaldaðarnesi. Það varð hans bani.  Herra Gissur tók ofan krossinn í Kaldaðarnesi, á hvern þeir höfðu lengi heitið og margar heitgöngur til hans gengið úr öllum sveitum. Hann stóð þar í kórnum allt til daga herra Gísla, þá var hann hafður heim í Skálholt og þar sundur klofinn […]

Krossinn í Kaldaðarnesi Read More »

Anna frá Stóruborg og Hjalti

Vigfús lögmaður og hirðstjóri Erlendsson á Hlíðarenda var ákaflega ríkur maður og mikill höfðingi. Hann lést í hafi á leið  til Íslands vorið 1521. Hann átti Guðrúnu Pálsdóttur frá Skarði, þess er veginn var 1496, Jónssonar. Þau áttu þrjár dætur. Var ein þeirra Guðríður, er átti Sæmundur ríki Eiríksson í Ási í Holtum, önnur Kristín,

Anna frá Stóruborg og Hjalti Read More »

Bruni á Stórólfshvoli

Verðmætin voru komin í kirkjuna áður en bærinn brann Katrín Erlendsdóttir, kona (d. 1693).Vigfúsar sýslumanns Gíslasonar (d. 1647) á Hvoli, var kvenskörungur mikill og sögð harðráð og peningaskyggn. Eftir að hún var orðin ekkja, brann bærinn á Stórólfshvoli með miklum auðæfum. Þóttist hún þá sjá mann sinn hvessandi logann og fleiri ótrúleg býsn. Hafði hún

Bruni á Stórólfshvoli Read More »

Bæjarbruni á Móeiðarhvoli

Þorsteinn Magnússon frá Espihóli, sýslumaður Rangvellinga, bjó að Móeiðarhvoli og var jafnan talinn með hinum vitrustu og mestu sýslumönnum. Valgerður er nefnd kona hans, Bjarnadóttir sýslumanns hins ríka á Skarði, afar ágjörn og miskunnarlaus við snauða menn, að talið er. Er það eitt til dæma talið, að eitt sinn væri hún á þingi með Þorsteini

Bæjarbruni á Móeiðarhvoli Read More »

Þykkvibær í Landbroti

Helgi borgari Þórarinsson í Þykkvabæ

Hér segir Þorbjörn Bjarnason (1895-1971) frá Heiði á Síðu frá Helga Þórarinssyni (1861-1915) bónda í Þykkvabæ í Landbroti.  Helgi Þórarinsson bjó í Þykkabæ í Landbroti um aldamótin 1900. Hann var kallaður Helgi borgari vegna þess að hann fékk útgefið borgarabréf frá sýslumanni til að hefja verslunarrekstur. Hann verslaði í mörg ár og það voru þægindi

Helgi borgari Þórarinsson í Þykkvabæ Read More »

Frá Árna sýslumanni Gíslasyni

Hér segir Þorbjörn Bjarnason (1895-1971) frá Heiði á Síðu frá Árna Gíslasyni (1820-1898) sýslumanni sem bjó á Kirkjubæjarklaustri og Holti á Síðu á seinna skeiði 19. aldar og þótti umdeildur. Í fyrstu frásögninni hefur sögumaður líklega slegið saman nöfnum Árna allrafrænda og Vigfúsar geysis föður hans, en það var sá síðarnefndi sem varð úti á

Frá Árna sýslumanni Gíslasyni Read More »

Dætur Magnúsar lögmanns Ólafssonar

Guðríður fann er menn voru feigir Þau hjón Magnús lögmaður Ólafsson og Ragnheiður Finnsdóttir biskups áttu dóttur er Þóra hét. Hún varð aðeins 4 ára. Það var merkilegt um hana að þegar hún hafði fengið málið fór að bera á því að oftast nær gat hún á morgnana sagt fyrir hvort gestir kæmu um daginn,

Dætur Magnúsar lögmanns Ólafssonar Read More »

Ögmundur biskup og fuglanetið

Guð bjargar mönnum um fugl til matar Móðir Ögmundar [Pálssonar] hét Margrét og var Ögmundardóttir. Bróðir hennar hét Þórólfur og var kallaður biskup. Hann bjó vestur í Laugardal á Vestfjörðum. Þar verður fyrst til að taka að hann [Ögmundur] hélt Breiðabólstað mörg ár. Það bar við einu sinni á páskadag að þar var lagt fuglanet

Ögmundur biskup og fuglanetið Read More »

Níska Magnúsar ríka í Sandaseli

Hér segir Rannveig Einarsdóttir (1895-1990) frá Strönd í Meðallandi frá langafa sínum Magnúsi ríka Magnússyni (1801-1890) í Sandaseli sem þótti mjög nískur.   Magnús ríki í Sandaseli var talinn mjög nískur, og þegar að hann var að fylgja fólki yfir Kúðafljótið sem gat ekki borgað honum með neinu er sagt að hann hafi sagt: ,,Eru

Níska Magnúsar ríka í Sandaseli Read More »

Magnús ríki í Sandaseli

Magnús ríki Magnússon (1801-1890) frá Skaftárdal bjó í Sandaseli (1827-1871) og er talinn hafa efnast vel á búskap sínum þar. Hér segir Gísli Tómasson (1897-1990) frá Melhól í Meðallandi frá honum. Magnús á Skaftárdal var sagður harðdrægur, að minnsta kosti á ferjutollinn þegar hann var að ferja yfir fljótið. Hann var fyrsti maðurinn sem byggði

Magnús ríki í Sandaseli Read More »