Sæmundur fróði fær Oddann

Þegar þeir Sæmundur, Kálfur og Hálfdan komu úr Svartaskóla var Oddinn laus og báðu þeir þá allir kónginn að veita sér hann. Kóngurinn vissi dável við hverja hann átti og segir að sá þeirra skuli hafa Oddann sem fljótastur verði að komast þangað. Fer þá Sæmundur undireins og kallar á kölska og segir:

„Syntu nú með mig til íslands, og ef þú kemur mér þar á land án þess að væta kjóllafið mitt í sjónum þá máttu eiga mig.“

Kölski gekk að þessu, brá sér í selslíki og fór með Sæmund á bakinu. En á leiðinni var Sæmundur alltaf að lesa í Saltaranum. Voru þeir eftir lítinn tíma komnir undir land á Íslandi. Þá slær Sæmundur Saltaranum í hausinn á selnum svo hann sökk, en Sæmundur fór í kaf og synti til lands. Með þessu varð kölski af kaupinu, en Sæmundur fékk Oddann

(Íslenzkar Þjóðsögur og ævintýri/safnað hefur Jón Árnason; Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust útgáfuna. Reykjavík: Þjóðsaga, 1954-1961, 1, bls. 478).

Tengdar sögur

Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Um vefinn

Vefurinn Sagnir af Suðurlandi er safn þjóðsagna sem gerast á Suðurlandi.