Merkisfólk

Huldufólkið í Birgu

Huldufólksbyggð var talinn vera í gamalli bæjarrúst í Koteyjartorfunni í Meðallandi. Hér segir Einar Sigurfinnsson (1884-1979) frá Háu-Kotey í Meðallandi frá henni.  Ingimundur Sveinsson fiðluleikari, bróðir Kjarvals, gaf einu sinni út smárit sem hét huldudrengurinn. Í því segir hann meðal annars að hann hafi séð grátandi dreng við hól eða gamla bæjarrúst sem heitir Birga […]

Huldufólkið í Birgu Read More »

Sigurður á Fljótum

Einhver orðrómur var um reimleika á bænum Fljótum í Meðallandi, sem taldir voru tengjast smiðju sem þar var. Hér segir Jón Sverrisson (1871-1968) frá Nýjabæ í Meðallandi, síðar bóndi í Álftaveri frá þeim. Það var gamall maður á Fljótum í Meðallandi, sem dáinn er núna (1967) fyrir ca 20 árum. Hann var járnsmiður mikill, og

Sigurður á Fljótum Read More »

Reimleikarnir á Hofi á Rangárvöllum

Vofa Sólborgar Jónssonar, sem var ásökuð um að hafa fyrirkomið barni sínu og var talinn hafa framið sjálfsmorð í kjölfarið þar sem hún var í varðhaldi í Þistilfirði 1893, gerði vart við sig víða. Hún var talinn fylgja Einari Benediktssyni, sem var settur sýslumaður Þingeyinga á þessum tíma og átti að rannsaka mál hennar, og

Reimleikarnir á Hofi á Rangárvöllum Read More »

Guðrún frá Eyjahólum og Títanic slysið

Guðrún Jónsdóttir (f. 1876) frá Eyjahólum var eini Íslendingurinn á Títanic. Hér segir Jón Sverrisson (1871-1968) frá Nýjabæ í Meðallandi, síðar bóndi í Álftaveri, frá henni. Jón Árnason í Eyjahólum átti tvær dætur, önnur hét Þórunn og hin Guðrún. Þórunn giftist Lofti frá Galtalæk á Rangárvöllum. En hin fór til Ameríku og var á Titanic

Guðrún frá Eyjahólum og Títanic slysið Read More »

Spítalaskipið Sankti Páll

Sankti-Páll strandar í Meðallandi

Skipsströnd voru tíð á Meðallandsfjörum í fyrri tíð og þóttu sum strönd frásagnaverðari en önnur. Franska spítalaskipið Sankti Páll þótti einstaklega glæsilegt, en það strandaði við ósa Kúðafljóts árið 1899. Hér segir Jón Sverrisson (1871-1968) frá því þegar hann var sendur til að rífa skipið:  Sankti-Páll var dásamlegasta skip sem ég hef séð á ævinni.

Sankti-Páll strandar í Meðallandi Read More »

Sóttur álfakaleikur

Sumt fólk hafði trú á töframætti hluta sem sagt var að kæmu frá huldufólki. Kaleikur sem var í Breiðabólstaðarkirkju á Rangárvöllum var einn þessara hluta. Hér segir Guðrún Filippusdóttir frá því er amma hennar, Þórunn Sigurðardóttir, leggur land undir fót og sækir kaleikinn góða fyrir tengdamóður sína sem læknaðist við það af geðveilu sinni.  Amma

Sóttur álfakaleikur Read More »

Þórunn Gísladóttir ljósmóðir bjargar barni með silkiklút

Þórunn Gísladóttir grasalæknir og ljósmóðir frá Kálfafellskoti í Fljótshverfi þótti afburða happasæl ljósmóðir. Hér segir dóttir hennar, Guðrún Filippusdóttir, frá því þegar móðir hennar tók á móti barni sem lá öfugt í móðurkviði  og læknirinn treysti sér ekki til að bjarga. Það var einu sinni kona sem hún var sótt til, og henni gekk nú

Þórunn Gísladóttir ljósmóðir bjargar barni með silkiklút Read More »

Guðmundur Eyjólfsson austanpóstur

Landpóstar nutu mikillar virðingar í samfélagi sínu og þóttu oftar en ekki miklir atgervismenn. Hér segir Einar Sigurfinnsson frá Háu-Kotey í Meðallandi frá einum slíkum, Guðmundi Eyjólfssyni frá Grímsstöðum í Meðallandi. Guðmundur Eyjólfsson á Grímsstöðum, ég man eftir honum, hann dó þegar ég var að verða fullorðinn maður. Hann var austanpóstur um tíma. Það er

Guðmundur Eyjólfsson austanpóstur Read More »

Bölvun á Meðallandsprestum

Það var trú manna að bölvun lægi á prestum í Meðallandi þar sem Meðallendingum hélst með eindæmum illa á prestum sínum en margir þeirra létust af slysförum á fyrri öldum eða fóru eftir skamma dvöl. Hér segir Einar Sigurfinnsson frá Háu-Kotey í Meðallandi frá upphafi þessarar bölvunar en hún tengdist flutningi predikunarstóls úr kirkjunni á

Bölvun á Meðallandsprestum Read More »

Hólmaselsklerkarnir

Aðeins tveir prestar þjónuðu kirkjunni að Hólmaseli í Meðallandi frá því að hún var byggð uns hún fór undir Skaftáreldahraunið 30 árum síðar. Hér segir Eyjólfur Eyjólfsson hreppstjóri á Hnausum í Meðallandi frá þeim. Presturinn í Hólmaseli var talinn dálítið mikillátur en hafi nú misst kjarkinn fullt eins mikið og aðrir þegar verulega reyndi á

Hólmaselsklerkarnir Read More »

Allsber kona í Skarðsfjalli

Jón Jónsson (Árnasonar frá Galtalæk) vinnumaður á Hellum á Landi var á ferð yfir Skarðsfjall á síðari hluta 19. aldar þegar á móti honum kom allsber kona og fór svo geyst að hárið flaksaðist um það bil beint aftur af höfðinu. Hryssan, sem Jón reið, þaut upp úr götunum, og þá fannst honum konan strjúkast

Allsber kona í Skarðsfjalli Read More »